Skilmálar

Vefverslunin Fjölnota er rekin af Kristólínu ehf kt. 470119-1520. Með því að staðfesta pöntun hjá fjölnota.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

1.
Vefverslunin www.fjolnota.is tekur við pöntunum allan sólarhringinn. Þegar greiðsla berst er send staðfesting í tölvupósti og telst þá kominn á samningur milli kaupanda og Fjölnota.

2.
Fjölnota áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, tæknilegra mistaka eða ef vara er uppseld. Verð og vöruúrval getur breyst fyrirvaralaust. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.

3.
Upplýsingar um vörur eru settar fram eftir bestu vitund seljanda hverju sinni. Í framsetningu upplýsinga gerir seljandi fyrirvara um birtingar- og/eða innsláttarvillur í myndum og texta. Sé vara uppseld áskilur Fjölnota sér rétt til að fella niður pöntun kaupanda, að hluta eða í heild. Kaupanda er ávallt tilkynnt um slíkar ákvarðanir og honum boðið að breyta pöntuninni eða samþykkja niðurfellingu hennar. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis ef með þarf.

4.
Hægt er að greiða með kreditkorti, debetkorti og millifærslu. Kortafærslur fara í gegnum örugga síðu MyPOS.is. Fjölnota geymir aldrei upplýsingar um greiðslukort kaupanda. Óski kaupandi eftir að millifæra skal sú greiðsla berast inn á reikning 161-26-020025, kt. 470119-1520. Sé valið að greiða pöntun með millifærslu skal millifærslan hafa farið fram innan klukkustundar frá því að pöntun var staðfest, en sé það ekki gert eyðist pöntun sjálfkrafa og vörurnar fara aftur í sölu. Engin pöntun er send út fyrr en hún hefur verið greidd að fullu.

5.
Vörur er oftast hægt að nálgast á Hvammstanga og Akureyri, en enginn sendingarkostnaður er á pöntunum. Ef valið er að fá pöntun senda gilda afhendingar,- ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts hf. um afhendingu vörunnar. Fjölnota ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Fjölnota til kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

6.
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, nema við sérstakar aðstæður. Við áskiljum okkur þó rétt á þremur virkum dögum til að afgreiða pöntun. Sé varan ekki til á lager verður haft samband við viðskiptavin og honum tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Þá stendur viðskiptavini til boða að bíða eftir umræddri vöru, nota greiðslu upp í aðra vöru, eða fá endurgreitt.

7.
Samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga, getur neytandi fallið frá samningi um kaup á vöru yfir netið innan 14 daga frá pöntun með skriflegri yfirlýsingu. Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum umbúðum (þar sem það á við). Ekki er hægt að skila vöru ef hún er ekki lengur í söluhæfu ástandi. 14 daga fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent Íslandspósti til flutnings, eða kaupandi fær vöruna afhenta hafi hann valið að sækja hana. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd, og kaupandi ber kostnað af endursendingu vörunnar.

8.
Ábyrgð er á öllum vörum vegna framleiðslugalla. Ábyrgðin nær ekki til slits, skemmda eða rangrar meðhöndlunar, sem verða við notkun og eru á ábyrgð kaupanda. Ef bæta þarf vöru vegna galla eru þær bætur í formi sömu eða sambærilegrar vöru. Upphæð bóta vegna galla verður aldrei hærri en verðmæti upprunalegu vörunnar. Hafa skal samband strax með tölvupósti á netfang: fjolnota@fjolnota.is.

9.
Fjölnota heitir viðskiptavinum sínum fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

10.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Fjölnota – Kristólína ehf
Hjallavegi 18
530 Hvammstangi
Kt. 470119-1520